Khufu
Khufu einnig þekktur sem Keóps var faraó sem uppi var á árunum 2589-2566 f.Kr. og lét gera pýramídann sem grafhýsi fyrir sig. Hann lét gera pýramídann eftir nokkrum öðrum pýramídumsem þegar voru til staðar en honum fannst hann þurfa særsta og glæsilegasta af þeim öllum. Hann notaði ekki þræla eins og sagt hefur í myndum og sögum heldur líklegast bændur og vinnumenn sem fengu eitthvað borgað. En ekki er víst hvort Khufu hafi verið harðstjóri eða frjálslyndur faraó því að flest rit sem tengjast honum eru frá egypskum fræðimönnum eða frá grískum og þeir egypsku segja hann hafi verið góður og frjálslyndur en grikkirnir segja að hann ahafi verið grimmur harðstjóri. Munurinn á þessum lýsingum er það sem gerir okkur ekki kleift að finna út almennilega hvernig hann réði ríki sínu.